Besta rúm sem ég hef átt ... Sigfús Fossdal

fusi.JPG

 

Rúmið sem ég fékk hjá Rúmgott er besta rúm sem ég hef átt. Ég hef alltaf átt erfitt með að finna rúm sem hentar mér, sérstaklega þar sem ég er mjög þungur og vöðvamikill. Ef ég hef verið í stífu rúmi til að halda bakinu beinu, hef ég orðið alveg blóðlaus og dofinn í höndunum, ef ég hef verið í mjúku rúmi til að hlífa öxlunum hef ég orðið stífur og ómögulegur í bakinu.

Í Rúmgott var tekið vel á móti mér, og ég tekinn í greiningu þar sem fundið var út hvernig ég sef, og í framhaldi sérsmíðað rúm að mínum þörfum. Rúmið sem ég fékk er til dæmis stíft undir bakið og mjúkt undir axlirnar þannig að þegar ég vakna á morgnana, líður mér vel í öxlunum, og er mjúkur og góður í bakinu.

Þetta hentar líka mjög vel þar sem ég og konan gátum aldrei verið sammála um hvernig rúm ætti að kaupa, þar sem við höfum augljóslega mismunandi svefnvenjur og þyngdardreifingu. Núna erum við bæði hæst ánægð, með dýnur sem henta hvoru okkar um sig fullkomlega.