Legugreining

Xsensor medical pro legugreining

l1.jpg

þjónusta

Rúm Gott býður öllum viðskiptavinum upp á fría legugreiningu með hinu byltingarkennda Xsensor medical pro búnaði. 

Hvað er legugreining og hvernig fer hún fram?
Greiningin fer þannig fram að viðskiptavinurinn leggst í rúm með Xsensor medical pro búnaðinum. Starfsfólkið getur þá með þar til gerðum tölvubúnaði mælt þrýstinginn og framleitt svæðaskipta heilsudýnu að þörfum viðkomandi.

 

l2.jpg


Hvenær er þörf á legugreiningu?

-Finnurðu fyrir eymslum í mjóbaki?
-Vaknarðu oft með verki í mjöðm?
-Finnurðu fyrir eymslum eða dofa í öxlunum?
-Sefurðu illa vegna annara óþæginda?
--hryggskekkju
--brjósklos
--samföllnum hryggjaliðum
--spengdum hryggjaliðum
--gigt, til dæmis:
-- slitgigt, vefjagigt eða liðagigt.


Ótrúlegur árangur hefur náðst í framleiðslu á heilsudýnum fyrir þá sem  þjást af gigt.


Ef svo er skaltu hafa samband, eða koma í heimsókn til okkar og fá fría legugreiningu og faglega ráðgjöf!

Hvað gerist eftir legugreiningu?
Eftir greininguna getur starfsfólk okkar bent þér á þá dýnu sem hentar þér best, bæði í hefðbundnum rúmum og rafmagnsrúmum. Ef engin þeirra hentar þér fullkomnlega getum við einnig sérsmíðað dýnur eftir þessum mælingum. Þar að auki getur þú fengið Physioform rúmbotn, en þar geturðu stillt rúmbotninn sjálfan með stillingum sem starfsfólk okkar gefur upp.